1. vika apríl 2019 Hvítá/Ölfusá og orkan
Hvernig tengjum við vatnasvið Hvítár/Ölfusár eðlisfræðinni. Kynning í dag um orku vatnsfalla og jarðhita. Rifjum upp efnafræði vatns og eðlisfræði orku – mælieiningar og ólíkar myndir. Skoðum sérstaklega vatnsaflsvirkjun og nýtingu jarðvarma.Endum umfjöllun á að spá í framtíðarorkukosti.
Jarðvarmavirkjanir …. á Nesjavöllum
Vinnum í bloggi og skoðum fréttir
3. vika mars 2019 Hvítá/Ölfusá og líffræðin
- vistfræði,
- orkuþörf lífvera,
- frumbjarga og ófrumbjarga,
- öndun og ljóstillifun,
- fæðukeðjur og vefi,
- jafnvægi í vistkerfi.
Fjöllum sérstaklega um lífríki á Hveravöllum og í Þingvallavatni.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, stefnumörkun 2018-2038 tillaga til kynningar
2. vika mars – Samræmd próf
Allir náttúrufræðitímar falla niður þessa viku vegna samræmdra prófa hjá 9. bekk.
1. vika mars 2019 – Ný viðfangsefni
Þessi vika er skörðótt hjá okkur.
Mánudag er 10. bekkur í starfskynningu og í þriðja tíma mun Hamrahlíðakórinn syngja í Aratungu.
Miðvikudag verða spennandi verkefni í boði í 5. og 6. tími í tilefni öskudagsins.
Þetta stoppar okkur samt ekki í að byrja á nýjum viðfangsefnum. Þema fram að páskum er heimabyggðin. Áhersla á uppsveitirnar og vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Við ferðumst frá upptökum til ósa, fræðumst um jarðfræði, líffræði, eðlisfræði og tengjum umhverfi. Við skiptum þessu niður á 4 vikur. Fyrstu vikuna áhersla á jarðfræðina, þá næstu tengjum við lífríkinu, smá þemavika inn á milli, svo er ein vika með áherslu á eðlisfræði og meðal annars virkjanir til umfjöllunar og endum svo á umhverfisfræðslu og framtíðarsýn.
Nemendur í 10. bekk taka þátt í ofangreindu en vinna jafnframt að lokamatsverkefni sem tengist heimabyggðinni, vistheimt á Biskupstungnaafrétti og fuglum við Laugarvatn.
4. vika febrúar – Klárum efnafræðiverkefni.
Síðasti tíminn í efnafræðinni – tími fyrir verkefnaskil og námsmat.
Allir eiga að vera búnir að skila verkefnum um frumefni.
Klára og skila skýrslu úr þurrístilrauninni – leiðbeiningar í skýrslugerð og skila inn á padlet má setja myndir myndahólfið.
Stutt könnun (UBNGQ) og mikilvægt að treysta á sjálfan sig Það má nýta öll heimsins hjálpargögn EN EKKI spyrja félaga.
Blogga um efnafræðina.
3. vika febrúar 2019 Skýrslugerð og áhersluatriði
Þessa viku notum við í að klára skýrslugerð, vinna með hugtök úr efnafræðinni á fjölbreyttan hátt, skoða fréttir, blogga, klára ýmis verkefni eða kíkja á stöðvar sem voru ókláraðar eða ókannaðar.
Stutt könnun í nearpod á miðvikudag …hér sérðu hvernig þetta virkar, 3 spurningar til að prufa
Byrjum á að skoða fréttir og hugtök.
Prufum eitthvað nýtt – æfingar í h5p
Önnur verkefni eru í boði. …..
- Vinna við skýrslu úr þurrístilrauninni s.l. miðvikudag.Vanda sig í skýrslugerðinni og skila inn á blogg og inn á padlet má gjarnan setja myndir sem þið tókuð inn á padletinn í myndahólfið.
- Æfum okkur að stilla efnajöfnur
- Stöðvavinna í efnafræði
- Build an Atom PhEThttps://phet.colorado.edu/en/simulation/build-an-atom
- Klára kynningu á frumefni –verkefnalýsing hér – áherslur og atriði sem skipta máli. Padlet til að skila kynningum inn á sama lykilorð og síðast 😉
- Lita lotukerfið – Flokkar….
2. vika febrúar 2019 Efnahvörf
Miðvikudagur er tilraunadagur. Nýtum þurrís til að skoða ýmis efnafræðifyrirbæri.
Notum mánudagstíma til að læra um efnahvörf og skoðum PhET forrit og æfum okkur í að búa til frumeindir. Raða róteindum og nifteindum í kjarna og rafeindum á hvolfin.
Nemendur í 10. bekk munu glíma við að stilla efnajöfnur eftir kúnstarinnar reglum.
Nearpod kynning í tíma og heima.
1. vika febrúar 2019 Lotukerfið
Við höldum áfram að kafa ofaní efnafræðina.
Miðvikudagstími féll niður þar sem vegir voru ófærir vegna hálku.
Hvernig er efnum raðað í lotukerfið? Til þess þurfum við að vita svör við spurningum eins og…
Hvað er…
- …sætistala?
- … lota?
- … flokkur?
- … rafeindahvolf?
- …gildisrafeind?
Nearpodkynning í tíma og heima ef vill
Kíkjum á stutt kahoot eða kíkja á þetta heima 0947797
4. vika janúar 2019 Frumeind
Stöðvavinna ………. Athuganir.………… kíkjum á þetta á miðvikudaginn
Lærum um frumeind (e.atom)– mörg hugtök sem þarf að meðtaka 😉
t.d. róteind-nifteind-rafeind-sætistala-massatala-rafeindahvolf-gildisrafeind-samsæta-hleðsla-jónir-sölt
Nearpod-kynning í tíma og/eða heima
Listi yfir frumefnin og eiginleika þeirra …. wikipedia
5 staðreyndir um lotukerfið … hvatinn.is
https://phet.colorado.edu/en/simulation/build-an-atom