2. vika mars Hvítá og jarðfræðin
Fyrirlestur og umræður.
Skoðum Google Earth. ……….. Verkefnavinna
Vefir sem við skoðum:
Áhersluatriði í dag:
- innri og ytri öfl – sérstök áhersla á flekaskil. Þingvellir einstakt dæmi.
- vatnasvið Ölfusár, Hvítár.
- ólíkar gerðir vatnsfalla (dagár, lindár og jökulár) – landmótun -fossar – jarðlög – fossberi. Sérstök áhersla á Sogið og Gullfoss
- jöklar – ólíkar gerðir – landmótun – hvalbak – jökulurð – jökulrákir. Langjökull og Hofsjökull.
- miðlunarlón – stöðuvatn – samanburður. Þingvallavatn og Hvítárvatn
- rof og set. Hvítárgljúfur, Ölfusárósar.
- Jarðhiti – eldgos – jarðskjálftar – hraun – aska Hveravellir, Kerlingafjöll, Skjaldbreiður og Miðfell
Jarðfræði – vatnasvið Hvítár/Ölfusár
Verkefni í boði:
- Hvað er grunnvatn, snælína og vatnasvið?
- Langjökull og gossaga á nútíma. Bókin,,Íslenskar eldstöðvar“ bls 248 Skoðum sérstaklega Skaldbreið sem er dyngja?
- Teiknið upp Gullfoss. Lýstu fossinum m.t.t. fossbera. Hvar er hann staðsettur í Hvítá? Hver er munurinn að horfa á hann austan eða vestan megin.
- Jarðhiti, lághita- og háhitasvæði. Bókin ,,Hverir á Íslandi“ bls. 121 Jarðhiti í uppsveitum bls. 120-128. Hvað ser skrifað um Reykholtshver?
- Flokkun vatnsfalla og bls. 211 í Jarðargæði.
- Þingvellir. Segðu frá flekahreyfingum og sigdældinni. Landrek. Power of the plantet bókin ,,Íslenskir steinar“ bls. 10-11 skoða kort vel.
- Umhverfisstofnun – skýrsla um Hvítárvatn.
- Af hverju er framburður vatnsfalla lagskiptur? Bls. 214 í Jarðargæði
- Framtíð jökla á Íslandi. Hvað gerist? Frétt visir.is Vísindavefurinn ………..Sólheimajökull NASA
- Teikna upp vatnasvið Hvítár. Hægt að nýta sér google earth forritið.
- Vatnasvið Þingvallavatns. Hve lengi er vatnið á leiðinni frá Langjökli? En rigningin sem fellur á hraunið? Hversu mikill hluti er yfirborðsvatn? Af hverju er heitt vatn á Nesjavöllum.
- Kaldavermsl….hvað er nú það? Frýs aldrei í Flosagjá? Í sjálfheldu frétt af vísi.is
- Skoðum berg…. basalt með hvítum kornum (dílabasalt)…..Flokkun storkubergs bls. 162 Jarðargæði og Íslenska steinabókin. Nýtum okkur dino-lite til að skyggnast nær.
- Fréttir Ísland í dag Íshellirinn í Langjökli
- Námsvefur um innri og ytri öfl
- Hugtakavinna – skilgreiningar, orðhlutar og hugtakakort með tenginum
Áskorun 5. – 7. bekkur
Áskorun í tveimur síðustu tímunum í dag
Vinna saman í hópum.
verkefnislýsing, hvað á að gera, hvernig á að skila af sér, hópurinn gefur sér nafn, skipta með sér verkum, allir hafa hlutverk
allir hópar að keppast og taka upp, allt/flest úti undir berum himni
verkefnið klippt og klárað – skil og sýning.
Eftirfarandi verkefni í boði – má gera eitt, tvö eða öll…
Risaeðla í réttri stærð á skólalóð.
„Skógarselfie“ af hópnum
Eurovision: eitt atriði (syngja, dansa, …)
Planka upp á Krummaklettum
Kennslumyndband: Zumba, vítaspyrna eða róla … ykkar er valið
Skila inn á padlet ….. hver hópur á sitt hólf
Fréttir í marsbyrjun
Breakout í lok spilavals
Brjótumst út í anda jólanna ;))))
Einn léttur breakout leikur svona í síðasta tíma fyrir jól
TWAS THE NIGHT BEFORE CHRISTMAS
FINDING FROSTY
Hugtök í nóvember
Global goals
Dagur Sameinuðu þjóðanna var þann 24. október síðastliðinn. Því er viðfangsefni dagsins að kynna að kynna sér heimsmarkmiðin
Fræðumst um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
varðandi sjálfbæra þróun 2016 – 2030.
Markmiðið er að hvetja ykkur til að taka virkan þátt í að móta framtíðina. Verkefnin eru:
- Vinna í hópum og skipta markmiðunum á milli sín þannig að hver hópur tekur tvö til þrjú markmið og gerir kynningu um þau. Þessar kynningar eru settar inn á padlet og auk þess verður hver hópur með framsögu á markmiðunum og stjórnar umræðu um málefnið.
- Seinni hlutinn helgast af því að hver og einn velur sér eitt markmið, nýtir smáforritið The Global Goals til að taka mynd/myndband og pósta inn á padlet og mögulega deila á samfélagsmiðla (fésbók, instagram og/eða twitter) merkja #telleveryone #okkarheimur2030 #heimsmarkmiðin @TheGlobalGoals. Þannig er hægt að taka þátt í alþjóðlegri samstöðu um heimsmarkmiðin. Síðan mun hver og einn kynna af hverju ákveðið markmið var valið.
- Svo er auka verkefni að prufa leikinn sem er í spjaldtölvum Global Hero og metast smá um árangur 😉
PADLET með öllum upplýsingum og þar skal líka skila inn verkefnum
Spurningar sem vert er að ?
Hverjar eru helstu áskoranirnar? Hver er staðan í dag? Verður heimurinn betri?
Heimsmarkmiðin – íslensk útgáfa
Góðar fréttir úr framtíðinni fb-síða heimsmarkmiðanna
Kynningarmynd heimsmarkmið um sjálfbæra þróun
Ungmennaráð heimsmarkmiða sameinuðuþjóðanna krakkarúv
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna – hvað getur þú gert? youtube
Stafræn borgaravitund
Nearpod-kynning heima og svo í tíma
Ræðum stafræna borgaravitund.
Hvað má? Hvað má ekki?
Ræðum hugtök:
- netöryggi – neteinelti
- netvenjur – netslór – netfíkn
- skjátími
- samfélagsmiðlar
- siðareglur
- samskipti formleg eða óformleg
- einkalíf – persónuupplýsingar
- gagnaöryggi
- stafrænt fótspor og orðstír
- viðskipti
- lykilorð
- falsfréttir
- hatursorðræða
- miðlalæsi
- áhrifavaldar
5 Ways Social Media Is Changing Your Brain