Lokamat er staða nemendar í námsgrein við lok skólagöngu. Þetta er samræmd einkunnagjöf og byggir á matsviðmiðum sem koma fram í námsskrá en eru ekki tölur, normaldreifðar eða hlutfallseinkunnir. Námsmat í vetur hefur tekið mið af hæfniviðmiðum og verið fjölbreytt leiðbeinandi mat (kennara, samnemenda, sjálfsmat) byggt á matslistum. Lokamatið er ekki byggt á meðaltali verkefna vetrarins.
Samkvæmt námskrá er skólum gefið nokkuð frelsi til að framkvæma námsmat en mikilvægt er að nota fjölbreyttar aðferðir við söfnun gagna og fá sem gleggstar upplýsingar um hvar nemandi stendur við lok grunnskólagöngu. Nánari upplýsingar um námsmat við lok grunnskóla er hægt að finna á vef menntamálastofnunar.
Lokamat í náttúrufræði í Bláskógaskóla er fjórþætt og verður framkvæmt á síðasta misseri. Notuð eru skýr viðmið og nemendur fá afhenta matslista í byrjun sem gott er að hafa til hliðsjónar. Þar kemur fram hvaða matsþættir eru skoðaðir í hverju verkefni.
matsviðmið lokamat 2019