Apríl 2019
Nú eru það lífvísindin, útikennsla og lokamat sem á hug okkar síðustu vikur skólaársins. Lífverur, flokkun þeirra, einkenni og gerð. Áskoranir og verkefni af ýmsu tagi í boði. Skoðum nærumhverfið vel og mikilvægt að huga að skóm og fatnaði því skjótt skipast veður í lofti.
Stóru krakkarnir í 10. bekk tengja saman það sem á dagana hefur drifið í náttúrufræðinni síðustu árin og glíma við lokaverkefni af ýmsu tagi.
Mars 2019
Viðfangsefnið fram að páskum er heimabyggðin. Áhersla á uppsveitirnar og vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Við nálgumst viðfangsefnið frá ýmsum hliðum og ferðumst frá upptökum til ósa, fræðumst um jarðfræði, líffræði, eðlisfræði og tengjum umhverfi. Við skiptum þessu niður á 4 vikur. Fyrstu vikuna áhersla á jarðfræðina, þá næstu tengjum við lífríkinu, smá þemavika inn á milli, svo er ein vika með áherslu á eðlisfræði og meðal annars virkjanir til umfjöllunar og endum svo á umhverfisfræðslu og framtíðarsýn.
Nemendur í 10. bekk taka þátt í ofangreindu en vinna jafnframt að lokamatsverkefni sem tengist heimabyggðinni, vistheimt á Biskupstungnaafrétti og fuglar við Laugarvatn.
Janúar 2019
Efnafræðin er viðfangsefnið á nýju ári. Allir bekkir glíma við verkefni tengd frumefnum og efnasamböndum. Kynnast lotukerfinu, efnahvörfum og stilla efnajöfnur. Nokkrar léttar tilraunir eru gerðar í stöðvavinnu jafnhliða öðrum verkefnum bæði á blöðum og í tölvum. Við leggjum áherslu á að þjálfa verklag, vinnubrögð og færni með því að gera stærri tilraunir og læra skýrslugerð. Þetta ætti að duga okkur fram að vetrarfríi;)
Nóvember 2018
Sólin lækkar á lofti og í svartasta skammdeginu lítum við til fortíðar og horfum til himins, leggjum áherslu á ljósið…
8. bekkur – bloggar um fyrirbæri í sólkerfinu – nemendur kynna sér forrit sem auðvelda okkur að þekkja stjörnumerki.
9. og 10. bekkur – nemendur vinna kynningarefni sem þau sýna hvert öðru og þeim sem heima sitja. Horfum út í geim. Nýtum okkur stjörnufræðiforritið Stellarium.
Október 2018
Nú í október ætlum við að fræðast um frumur, læra að gera tilraunir, skoða í smásjá og skila skýrslu. Elstu nemendurnir skoða vel frumuskiptingar, DNA og lögmál erfðafræðinnar.
Ágúst 2018
Þessar fyrstu vikur skólaársins eru
nemendur að vinna mikið útivið í ýmsum verkefnum tengdum vistfræði og umhverfismennt. Við munum taka þátt í plastlausum september, fræðast um íslensk vistkerfi og leggja okkar að mörkum m.a. í tilefni af degi íslenskrar náttúru.