Í tilefni af degi íslenskrar náttúru 16. september…
.. er upplagt að nýta góða veðrið – fara upp í rjóður og ræða um íslenska náttúru með áherslu á fjölbreytileika lífvera og sjálfbærni.
Veltum fyrir okkur barrskógarbelti, sjálfsáðum skógi, eyðingu skóga, landgræðslu, vistheimt, eldfjallajörð (andosol), ilmbjörk og fjalldrapa, kvæmi, skógviðarbróður (birkibróður), Heklu og mörgu fleiru.
PLÖNTUVEFSJÁ
FLÓRA ÍSLANDS
Ætlunin var að safna birkifræi til að sá inni í afrétti Rótarmannatorfur 77 ha landgræðslusvæði sem er afgirt rofabarðasvæði í vistheimt. Þetta haustið er lítið fræmagn á trjám og illa þroskað. Við ætlum samt að kíkja í kringum okkur og kannski getum við safnað
Fróðleikur um birkifræ – söfnun og sáningu og hér má finna bækling pdf
fróðleikur um Hekluskóga
Förum svo í létta leiki í lok tímans jafnvel hægt að skella sér í alías-keppni úr hugtökum dagsins 😉